Þraut


Grunnnámskeið

Grunnnámskeið um vefjagigt - hefst í ágúst 2024

Grunnnámskeið um vefjagigt verður haldið dagana 27.8, 29.8., 3.9 og 5.9. 2024.

Um er að ræða 4ra daga fræðslunámskeið fyrir fyrir fólk með vefjagigt og aðstandendur þeirra, í húsnæði Þrautar að Höfðabakka 9.  Einnig er hægt að taka námskeiðið sem vefnámskeið í gegnum Zoom.   Fyrirlestrarnir fara fram frá kl. 16:30 - 18:30.
Fyrirlesarar: Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Ágústa Ýr Sigurðardóttir sjúkraþjálfari og Eggert S. Birgisson sálfræðingur.


Dagskrá:
Þriðjudagur 27. ágúst:  Vefjagigt og skyldir sjúkdómar, sjúkdómsmynd, greining, orsakir og meðferð.
Fimmtudagur 29 ágúst: Andleg heilsa vefjagigtarsjúklinga.
Þriðjudagur 3. september: Aukin vellíðan og hreyfing með vefjagigt
Fimmtudagur 5. september:  Lyf í vefjagigt. Fræðsla og spjall fyrir aðstandendur.

Aðstandendur gegna mikilvægu hlutverki í lífi vefjagigtarsjúklinga og mikilvægt er að þeir þekki hlutverk sitt.

Verð: 42.000 kr- og innifalið er gjald fyrir einn aðstandenda og námsgögn. Skráning er hér að neðan.   Nánari upplýsingar eru í síma 555-7750 eða á netfanginu www.thraut@thraut.is

Skráning

Verð: 42000 kr.

Kreditkort
Virk
Krafa í banka


Smellið hér til að lesa skilmála

Til baka