Grunnnámskeið um vefjagigt verður haldið dagana 23., 25., 30. janúar og 1. febrúar 2024.
Um er að ræða 4ra daga fræðslunámskeið fyrir fyrir fólk með vefjagigt og aðstandendur þeirra, í húsnæði Þrautar að Höfðabakka 9. Einnig er hægt að taka námskeiðið sem vefnámskeið í gegnum Zoom. Fyrirlestrarnir fara fram frá kl. 16:30 - 18:30.
Fyrirlesarar: Arnór Víkingsson gigtarlæknir, Ágústa Ýr Sigurðardóttir sjúkraþjálfari og Eggert S. Birgisson sálfræðingur.
Dagskrá:
Þriðjudagur 23. janúar: Vefjagigt og skyldir sjúkdómar, sjúkdómsmynd, greining, orsakir og meðferð.
Fimmtudagur 25. janúar: Andleg heilsa vefjagigtarsjúklinga.
Þriðjudagur 30. janúar: Aukin vellíðan og hreyfing með vefjagigt
Fimmtudagur 16. nóvember: Lyf í vefjagigt. Fræðsla og spjall fyrir aðstandendur.
Aðstandendur gegna mikilvægu hlutverki í lífi vefjagigtarsjúklinga og mikilvægt er að þeir þekki hlutverk sitt.
Verð: 42.000 kr- og innifalið er gjald fyrir einn aðstandenda og námsgögn. Skráning er hér að neðan. Nánari upplýsingar eru í síma 555-7750 eða á netfanginu www.thraut@thraut.is